Mest selda tegundin hjá Vilko.   Vöfflur sem alltaf eru sígildar. Bestar nýbakaðar beint úr vöfflujárninu bornar fram með sultu og rjóma.  

 


 

Vilko vöfflur 500 gr.

Vöfflur með kakói og súkkulaðibitum. Afar góðar sem kaffibrauð eða ábætisréttur. Bestar nýbakaðar með ís, ávöxtum, sultu, rjóma eða hverju því sem þér finnst best.

Súkkulaðivöfflur 440 gr.

Ljúffengar pönnukökur Góðar með sykri, þeyttum rjóma og sultu, eða á hvern þann máta sem þér líkar best.
Pönnukökudeigið er einnig hægt að nota til að baka úr crépes sem svo má fylla eftir smekk.

Pönnukökur 400 gr.

Skúffukaka með súkkulaði. Bráðnar í munni, best nýbökuð með þeyttum rjóma. Góð í barnaafmælin eða með kaffinu. Botninn inniheldur ávaxtasykur með fáar hitaeiningar.

Skúffukaka 420 gr.

Hefðbundin hvít sjónvarpskaka með karamellubráð og kókosi. Mjög ljúffeng kaka sem gott er að bera fram heita með rjóma. Má nota í fleiri kökugerðir s.s. epla- og ávaxtaköku.

Sjónvarpskaka 580 gr.

Mjög góðar muffur með súkkulaðibitum sem fljótlegt er að baka ef gesti ber að garði.   Tilvaldar í afmælið fyrir smáfólkið eða bara með síðdegiskaffinu.  
Upplagt að eiga tilbúið í frysti
.

Súkkulaðimuffur 475 gr.

Ljúffengar skonsur. Mjög góðar fyrir allskonar álegg s.s. ost, hangikjöt eða bara smjör. Einnig góðar í skonsutertur. Bestar nýbakaðar beint af pönnunni.

Skonsur 500 gr.

Hefðbundið, hlutlaust djúpsteikingardeig sem nota má fyrir öll hráefni sem á að djúpsteikja, t.d. til djúpsteykingar á kjúklingi, fiski, osti og rækjum Kryddist eftir smekk.

Orly-deig 275 gr.

Úrvals gerdeig með fjölbreytta möguleika þar sem þú lætur hugmyndaflugið ráða ferðinni. Mjög gott í bollur, snúða, horn o.s.frv. bragðbætt að eigin smekk.

Smábrauð fín 500 gr.

Hollt og trefjaríkt brauðdeig fyrir ýmsar útfærslur af brauði s.s. súpubrauð, fléttubrauð o.s.frv.

Smábrauð gróf 500 gr.

Gerdeig fyrir pitsabotn sem setja má á allskonar góðgæti. Vinsæl tegund hjá öllum aldurshópum. Deigið hefast strax þegar það er blandað með volgu vatni.

Pizzubotn 14" 250 gr