Staður: 540 Blönduós, A-Húnavatnssýsla
Heimilisfang: Ægisbraut 1
Sími: 452 4272
Fax: 452 4072
E-mail: vilko@krokur.is

Vilko ehf

Framleiðslan hófst undir vörumerkinu Vilko árið 1969. Haustið 1985 keypti Kaupfélag Húnvetninga framleiðslulínu og uppskriftir Vilko og flutti starfsemina á Blönduós og hóf þar rekstur 1.mars 1986. Um nokkurra ára skeið voru einungis framleiddar sætsúpur en frá 1995 hefur verið bætt við nýjum framleiðslu vörum sem fengið hafa góðar viðtökur neytenda og hefur verið stöðugur vöxtur undanfarin ár.  Vilko var deild innan Kaupfélags Húnvetninga þar til hlutafélagið Vilko ehf. var stofnað árið 2000.  Hluthafar í Vilko eru Húnakaup ehf.  O.Johnson & Kaaber,  sveitarfélög í A-Hún. ásamt nokkrum starfsmönnum og einstaklingum. 

Starfsmenn:
Framkvæmdastjóri er Valgarður Hilmarsson, og rekstrarstjóri Guðmundur Paul Jónsson. Gunnar Valdimarsson sem var framkvæmdastjóri frá upphafi, lét af störfum í upphafi árs 2007. Matvælafræðingur starfar í hlutastarfi við vöruþróun og gæðamál. Í Vilko er lítið tilrauna eldhús þar sem öll vöruþróun fer fram.

Dreifing: 
Ó.Johnson & Kaaber Tunguhálsi 1 112 Reykjavík Sími: 535 4000 Fax: 562 1878


Vilko vörur eru markaðsráðandi á Íslandi og eru til í öllum matvöruverslunum landsins. Vilko sætsúpur eru einstök framleiðsla og því einráða á markaðnum, svo er einnig um Orly djúpsteikingardeigið.

Helstu vörur eru:
Vilko vöfflur, pönnukökur, pizzubontnar, kakósúpa, bláberjasúpa, sætsúpa, ásamt um 10 öðrum vörum. Flestar vörur Vilko eiga það sammerkt að aðeins þarf að setja vatn saman við hárefnið og hræra út áður en varan en matreidd.

 

Nýtt.

Um áramótin 2007 - 2008, keypti Vilkó ehf vörumerki og framleiðslulínu á Prima kryddvörum. Undir merkjum Prima eru framleiddar um 60 tegundir af kryddi í um 90 vörunúmerum. OJ& Kaaber sjá um dreyfingu og sölu á á kryddinu eins og öðrum Vilkó vörum.

Einfalt, fljótlegt og þægilegt eru kjörorð Vilko.
 
Markmið:
  • Að hafa vörurnar eins neytandavænar og hægt er þannig að öll meðhöndlun sé einföld og aðeins þurfi bara að bæta við vatni en ekki dýrum hráefnum
  • Framleiða ódýrar instant vörur sem uppfylla gæði matreiðslu heimaeldhússins.
  • Takmarka notkun aukaefna eftir því sem hægt er
  • Nota alltaf bestu hráefni sem fást hverju sinni

Merki Vilko
Smelltu hér til að sækja merki Vilko á psd formi

Smelltu hér til að sækja merki Vilko á Freehand formi

Smelltu hér til að sækja merki Vilko á Adobe Illustrator formi